Færslur: 2012 Febrúar

04.02.2012 09:16

Ótitlað


Við fjölskyldan misstum einn mjög góðan vin þann 8 janúar, Þórir er þarna ásamt Jónba,Svenna Ben,Palla Ben.

Þarna eru þeir Óseyra bræður Þórir og Sigurður, flottir karlar þarna.
Þarna eru þeir inn í Stöð í erfðafdrykkju afa. Það er svo mikill missir af honum Þóri og á ég margar mjög ánægjulegar minningar um hann. Hann t.d bjargað mér mjög oft þegar ég var að fara á handboltaæfingar út í þorp, þá hringdi ég 3 langar og a.t.h hvort hann ætti ekki leið út í þorp þannig að ég gæti fengið far, hann fór oft held ég bara til að skutla mér ekki held ég að hann hafi alltaf átt leið út eftir þegar ég  hringdi 3 langar.
 

04.02.2012 09:03

Laugardagurinn 4 febrúar 2012


Þá hefur okkur fækkað um einn hérna á heimilinu, hún Salka okkar fórst á gamlársdag.
Hennar er sárt saknað.

þarna er hún rétt 3 - 4 mánaða.

Þarna ákváð Salka að kúra pínu á teppinu hennar Tönju :-)
  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 124118
Samtals gestir: 37501
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:13:41
clockhere